Holtavirkjun
Landsvirkjun hefur um árabil unnið að rannsóknum og undirbúningi virkjana í neðri hluta Þjórsár neðan Búrfellsvirkjunar: Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun.
Mati á umhverfisáhrifum allra virkjunarkostanna er lokið og hafa þeir verið teknir inn á staðfest aðalskipulag viðkomandi sveitafélaga.
Hvammsvirkjun er efsti virkjunarkosturinn, þar fyrir neðan kæmi Holtavirkjun og Urriðafoss er svo neðsti virkjunarkosturinn, næst sjó.
Landsvirkjun hefur lagt til mótvægisaðgerðir til lágmörkunar neikvæðra áhrifa á fiskistofna í Þjórsa verði af frekari virkjunum í ánni. Mótvægisaðgerðirnar taka til aðgerða til að tryggja niðurgöngu seiða án verulegra affalla og aðgerða til að koma til móts við skert búsvæði á svæðum sem fara undir lón eða þar sem veruleg breyting verður á rennsli um farvegi. Sjá nánar um rannsóknir á fiskgengd í Þjórsá og mótvægisaðgerðir hér:
Sjá nánar um rannsóknir á fiskgengd í Þjórsá og mótvægisaðgerðir
Árið 2013
Á árinu 2013 var Holtavirkjun flokkuð í biðflokk og því var undirbúningsframkvæmdum haldið í lágmarki. Landsvirkjun lagði ríka áherslu á að Holtavirkjun færðist í nýtingarflokk en ný verkefnisstjórn rammaáætlunar lagði til í desember að virkjanakosturinn yrði áfram í biðflokki.